TM í Kauphöll
Hlutabréf TM voru skráð í Kauphöll Nasdaq OMX á Íslandi 8. maí 2013. Hlutafé félagsins skiptist í árslok árið 2017 milli 899 hluthafa, en þeir voru 1.003 í ársbyrjun.
Upplýsingastefna TM
1. Markmið upplýsingastefnu
Markmið upplýsingastefnu TM er að tryggja jafnan aðgang hagsmunaaðila að réttum og áreiðanlegum upplýsingum um TM. Þannig má auka þekkingu þeirra og eftir atvikum annarra á starfsemi félagsins.
2. Hagsmunaaðilar
Helstu hagsmunaaðilar vegna framkvæmdar upplýsingastefnu TM eru:
- Hluthafar
- Fjárfestar
- Greiningarfyrirtæki
- Matsfyrirtæki
- Kauphöll Nasdaq OMX á Íslandi
- Fjölmiðlar
3. Verklag upplýsingamiðlunar
TM fylgir í öllu þeim lögum og reglum sem gilda um upplýsingaskyldu félaga sem skráð eru á aðallista Kauphallar Nasdaq Iceland hf. eins og nánar greinir hér að neðan.
a. Tilkynningar
Tilkynningum um uppgjör félagsins, niðurstöður matsfyrirtækja eða annað sem talið er geta haft umtalsverð áhrif á rekstur, afkomu og efnahag félagsins er dreift í gegnum fréttaveitu Kauphallar Nasdaq Iceland hf. Þegar fréttir hafa verið birtar í fréttaveitunni eru þær birtar á vef TM (www.tm.is)
b. Kynningar
Í kjölfar árs- og árshlutauppgjöra heldur TM kynningarfundi fyrir hagsmunaaðila. Á fundunum er jafnframt farið yfir spár félagsins um afkomu næstu ársfjórðunga.
c. Þagnartímabil
Einum mánuði fyrir lok hvers uppgjörstímabils og fram að uppgjöri veitir TM engar upplýsingar um málefni er hafa áhrif á rekstur, afkomu og efnahag félagsins.
d. Afkomuspár
Samhliða uppgjörum birtir félagið spá fyrir næstu fjóra ársfjórðunga. Spárnar eru uppfærðar ef líkur eru taldar á verulegu fráviki frá áður birtri spá.
e. Samskipti
Það er markmið TM að eiga í góðum samskiptum við hagsmunaaðila. Í þeim tilgangi er leitast við að veita þeim aðstoð við umfjöllun um félagið innan þess ramma sem lög og reglur heimila.
f. Talsmaður
Forstjóri TM er talsmaður félagsins. Hann getur veitt öðrum starfsmönnum TM tímabundna heimild til þess að tjá sig um afmarkaða þætti starfseminnar.
Forstjóri félagsins er Sigurður Viðarsson
netfang: sigurdur@tm.is
sími: 515-2609/898-6276
Upplýsingastefna TM er samþykkt af stjórn félagsins og skal endurskoðuð a.m.k. einu sinni á ári.
Reykjavík 22. nóvember 2017
Stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar hf.
Þróun á hlutabréfaverði TM frá upphafi - 8.maí 2013 til 14.mars 2018
Listi yfir 20 stærstu hluthafa 31. desember 2017
Nafn | Hlutafé | % | |
---|---|---|---|
1 | Lífeyrissjóður verslunarmanna | 67.748.995 kr. | 9,99 |
2 | Gildi - lífeyrissjóður | 61.920.947 kr. | 9,13 |
3 | Birta lífeyrissjóður | 55.037.562 kr. | 8,12 |
4 | Lífeyrissj.starfsm.rík. A-deil | 46.395.000 kr. | 6,84 |
5 | Helgafell ehf. | 45.000.000 kr. | 6,64 |
6 | Stefnir - ÍS 15 | 37.308.809 kr. | 5,50 |
7 | Íslandsbanki hf. | 33.210.688 kr. | 4,90 |
8 | Lansdowne Icav Lansdowne Euro | 32.000.000 kr. | 4,72 |
9 | CF Miton UK Multi Cap Income | 22.024.971 kr. | 3,25 |
10 | Stapi lífeyrissjóður | 19.802.613 kr. | 2,92 |
11 | Einir ehf. | 19.591.212 kr. | 2,89 |
12 | Frjálsi lífeyrissjóðurinn | 19.448.213 kr. | 2,87 |
13 | Lífeyrissj.starfsm.rík. B-deil | 15.680.000 kr. | 2,31 |
14 | Global Macro Absolute Return A | 14.342.822 kr. | 2,12 |
15 | Stefnir - ÍS 5 | 13.849.118 kr. | 2,04 |
16 | Riverside Capital ehf. | 13.000.000 kr. | 1,92 |
17 | Almenni lífeyrissjóðurinn | 9.952.313 kr. | 1,47 |
18 | Global Macro Portfolio | 9.728.851 kr. | 1,43 |
19 | Kvika banki - safnreikningur 5 | 7.934.022 kr. | 1,17 |
20 | Þrír GAP ehf | 7.242.441 kr. | 1,07 |