Samsett hlutfall
Aðal mælikvarði á afkomu vátryggingafélaga er samsett hlutfall og er yfirleitt þá átt við nettó hlutfall eftir að tekið hefur verið tillit til endurtrygginga. Lagt er þá saman eigið tjónshlutfall og kostnaðarhlutfall. Eigið tjónshlutfall er eigin tjón deilt með eigin iðgjöldum, en þá er bæði búið að draga frá tjónakostnað sem fellur á endurtryggjendur frá tjónum og kostnað vegna endurtrygginga frá iðgjöldum. Kostnaðarhlutfall er kostnaður sem fellur á vátryggingastarfsemina deilt með eigin iðgjöldum.
Í sögulegu og alþjóðlegu samhengi hefur samsett hlutfall verið hátt á Íslandi. Undantekning frá þessu eru undanfarin ár þar sem hlutfallið hefur verið að meðaltali undir 100%. Á Norðurlöndunum hefur samsetta hlutfallið s.l. 20 ár verið um eða undir 90%. Segja má að þar hafi myndast samhljómur um að vátryggingastarfsemin eigi að standa undir rekstri félaganna þannig að þau þyrftu minna að reiða sig á afkomu fjárfestinga til að skila eðlilegri arðsemi.
Samsett hlutfall hækkar gjarnan á tímum verðbólgu þar sem verðlag hækkar frá því að iðgjöld eru greidd þar til bæta þarf tjón. Til þess að bregðast við þessu fjárfesta vátryggingafélög gjarnan í verðtryggðum verðbréfum sem þá skila hærri fjárfestingatekjum þegar verðbólga eykst. Það helst því oft í hendur að þegar afkoma af vátryggingum er slök að þá eru fjárfestingar að skila góðri afkomu. Það sama á við þegar mikill hagvöxtur er í þjóðfélaginu líkt og um þessar mundir að þá eykst tjónatíðni t.d. vegna meiri umferðarþunga og samsetta hlutfallið hækkar. Í örum hagvexti eykst virði hlutabréfa og þar með afkoma fjárfestinga vátryggingafélaganna.
Markmið TM er að samsetta hlutfallið sé til lengri tíma undir 95% en lögð hefur verið áhersla á að bæta aðferðir í verðlagningu, áhættumati, endurtryggingum og almennum rekstri. TM hefur síðustu ár lagt mikla áherslu á að nýta nýjar tölfræðilegar aðferðir sem m.a. fela í sér greiningu á þekktum áhættuþáttum eins og aldri, fjölskyldusamsetningu og búsetu vátryggingataka, til að bæta áhættutöku og verðlagningu. Þannig hefur félagið náð að bæta verulega samsett hlutfall sitt án þess að tapa markaðshlutdeild.
Samsett hlutfall %
Kostnaðarhlutfall
Kostnaðarhlutfall er sá hluti rekstrarkostnaðar sem tilheyrir vátryggingarekstri, sem hlutfall af eigin iðgjöldum. Hjá TM er þessi kostnaður um 88% af heildarkostnaði félagsins en 12% kostnaðarins fellur til vegna fjárfestingastarfsemi. Markmið félagsins er að kostnaðarhlutfall verði undir 20% en gjarnan er þetta hlutfall um 14-15% á hinum Norðurlöndunum en þá er miðað við brúttó hlutfall sem gefur lægri niðurstöðu. Hér gildir eins og svo oft minni stærðarhagkvæmni auk þess sem opinberar álögur eru hér hærri en annars staðar m.a. í formi fjársýsluskatts á laun. Lang stærsti kostnaðarliðurinn er laun og launatengd gjöld en sá liður vegur um 51% af heildarkostnaði.
Markmið TM er að ná kostnaðarhlutfallinu undir 20% en félagið telur sig geta aukið iðgjöld án þess að hækka rekstrarkostnað í sama mæli. Kostnaðarhlutfall TM er með því lægsta sem þekkist hér á landi hjá vátryggingafélögum en þess ber að geta að TM er með stærri hluta sinna iðgjalda frá fyrirtækjum en hin félögin.
Eigið kostnaðarhlutfall %