Framkvæmdastjórn


Sigurður Viðarsson

forstjóri

Sigurður hóf störf hjá TM í október 2007. Hann starfaði áður hjá Kaupþingi Líf m.a. sem aðstoðarforstjóri og framkvæmdastjóri fjármála- og tryggingaþjónustu. Sigurður er með BSc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. 

Björk Viðarsdóttir

framkvæmdastjóri tjónaþjónustu

Björk hóf störf hjá TM í ágúst 2008 sem lögfræðingur í tjónaþjónustu, en hún útskrifaðist sem Cand. jur. frá lagadeild Háskóla Íslands í júní 2004 og lauk málflutningsprófi fyrir héraðsdómi 2009. Björk tók við stöðu framkvæmdastjóra tjónaþjónustu 1. september 2016, en þá var hún forstöðumaður persónutjóna. Björk starfaði hjá Útlendingastofnun á árunum 2005 – 2007, sem lögfræðingur og síðar forstöðumaður.

Garðar Þ. Guðgeirsson

framkvæmdastjóri áhættuverðlagningar

Garðar hóf störf hjá TM í júní 2008. Hann starfaði á árunum 2007-2008 sem ráðgjafi hjá McKinsey & Company í Kaupmannahöfn. Garðar er með BSc. gráðu í rafmagnsverkfræði frá Háskóla Íslands, MSc. gráðu í Software Engineering frá Univeristy of York. Garðar lauk jafnframt MBA gráðu frá IMD, árið 2006. 

Hjálmar Sigurþórsson

framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar og erlendra viðskipta

Hjálmar hóf störf hjá TM í september 1988 fyrst sem starfsmaður í tjónaþjónustu en varð framkvæmdastjóri hennar árið 2005. Árið 2008 tók Hjálmar við starfi framkvæmdastjóra fyrirtækjaþjónustu TM. Hjálmar er með MBA gráðu frá Háskólanum Reykjavík. 

Kjartan Vilhjálmsson

framkvæmdastjóri einstaklingsráðgjafar og markaðsmála

Kjartan hóf störf hjá TM í janúar 2005 sem lögfræðingur í tjónaþjónustu en hann útskrifaðist sem Cand. jur. frá lagadeild Háskóla Íslands, sama ár. Kjartan var skipaður framkvæmdastjóri tjónaþjónustu í maí 2008 en þá var hann deildarstjóri líkamstjóna. Hann tók við stöðu framkvæmdastjóra einstaklingsráðgjafar og markaðsmála 1. september 2016. 

Óskar B. Hauksson

framkvæmdastjóri fjármála og reksturs

Óskar hóf störf hjá TM í ágúst 2006 sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs. Óskar er með Cand. ing. gráðu í rafmagnsverkfræði og BSc. gráðu í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands og útskrifaðist með MBA gráðu frá Oxford, Said Business School , árið 2005. Óskar hefur verið framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs TM frá árinu 2008.